Sprotahlaðvarpið Meercast gengur til liðs við Norðurskautið

Einhverjir kannast eflaust við hlaðvarpið Meercast sem hóf göngu sína fyrr í vor. Þar tóku þeir Kristinn Árni og Jökull Sólberg fyrir ýmis málefni tengd sprotafyrirtækjum og þeirra umhverfi í hnitmiðuðum 8-10 mínútna þáttum.

Þeir hafa ákveðið að færa dagskrárgerð sína undir merki Norðurskautsins, og munu halda áfram að gefa út hlaðvörp með sama sniði hér á Nordurskautid.is

“Það er frábært að sjá þetta framtak og við vildum endilega taka þátt” segir Jökull í samtali við Norðurskautið. “Það munu koma þættir hingað inn á næstunni!”

Talsmenn Norðurskautsins eru mjög ánægðir með liðsaukann sem þeir fá með aðkomu Meercast þáttana og vonast til að það muni auka úrval þess efnis sem er aðgengilegt notendum Norðurskautsins.

Fyrsti nýi þátturinn, sem verður gefinn út undir nafninu “Hlaðvarp Norðurskautsins” kemur út á morgun, mánudag. Einnig munu eldri þættir verða aðgengilegir hér á vefnum.

Þessar breytingar munu ekki hafa áhrif á þá sem nú þegar eru áskrifendur að Meercast, heldur verða upplýsingarnar einungis uppfærðar. Áhugasamir geta orðið áskrifendur hér: Hlaðvarpið á iTunes